Falleg peysa í Nóa línunni, fulllkomin í leikskólann og daglegt líf. Passlega þykk svo hún er frábær sem millilag undir úlpu eða regnstakk. Peysan er prjónuð ofanfrá og niður.
Uppskriftin er í boði bæði sem niðurhalanlegt PDF skjal, eða prentuð út á fallegan þykkan pappír í A5 stærð – tilvalið sem gjöf með garni.
Athugið að ekki er skilaréttur á uppskriftum sökum eðli vörunnar.
Stærðir: 0-6 (6-12) mán 1-2 (2-3) 4-5 ára
Yfirvídd: 46 (51) 54 (60) 63 sm
Heil lengd: 27 (32) 35 (38) 41 sm
Garn: 100 (100) 100 (150) 150 g Jord clothing Woolly Light (50 g = 250 m)
Prjónfesta: 28 lykkjur = 10 sm
Prjónar: Hringprjónn 40/ 60 sm 2,5 og 3 m; Sokkaprjónar 2,5 og 3 mm
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.