Fullkomið sett fyrir veturinn úr Nóa línunni. Falleg húfa, vettlingar og hálskragi sem smellpassar með Nóa peysunni og buxunum.
Uppskriftin er í boði bæði sem niðurhalanlegt PDF skjal, eða prentuð út á fallegan þykkan pappír í A5 stærð – tilvalið sem gjöf með garni.
Athugið að ekki er skilaréttur á uppskriftum sökum eðli vörunnar.
Stærðir: 1-3 (3-5) 5-7 ára
Garn: 250 (250) 250 g Jord Clothing Woolly (50 g = 125 m)
Prjónfesta: 22 lykkjur = 10 sm
Prjónar: Hringprjónn 40 cm: 3, 3,5 og 4 mm Hringprjónn 60 cm: 4 mm Sokkaprjónar: 4 mm
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.